Áralöng reynsla og þekking okkar fólks

Íslenska lögfræðistofan var stofnuð árið 2008. Stofan er traust og framsækin lögmannsstofa með starfsstöð að Grandagarði 5, 101 Reykjavík.

Í fimmtán ár hefur það verið markmið Íslensku lögfræðistofunnar að veita viðskiptavinum sínum faglega og persónulega þjónustu á öllum sviðum lögfræðinnar, hvort sem um er að ræða fyrirtæki, opinberar stofnanir, sveitarfélög, banka eða einstaklinga, hér á landi sem og erlendis.

Lögmenn stofunnar, sem búa yfir víðtækri reynslu af lögmannsstörfum og lögfræðilegri ráðgjöf, kappkosta við að gæta hagsmuna viðskiptavina sinna í hvívetna með fagmennsku að leiðarljósi.

Eigendur Íslensku lögfræðistofunnar eru lögmennirnir Axel Kári Vignisson, Arnar Kormákur Friðriksson og Ómar Örn Bjarnþórsson.